Component Cleaner í Component Shop (Hlutaverkstæði)

NEW

Icelandair · Not specified

Full time
Contract
Full time
Base
Not specified
Posted

Icelandair er líflegur vinnustaður með starfstöðvar á Íslandi, Evrópu og Norður-Ameríku. Við erum einn stærsti og fjölbreyttasti vinnustaður landsins en starfsumhverfið er bæði alþjóðlegt og síbreytilegt. Við fljúgum til fjölda stórborga í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada, og til áfangastaða innanlands og á Grænlandi.

Viðhaldssvið Icelandair, sem staðsett er í viðhaldsskýli Icelandair í Keflavík, ber ábyrgð á rekstri og eftirliti með viðhaldi flugvélaflota Icelandair. Hjá tækniþjónustu Icelandair starfar öflugur hópur sem sér til þess að öryggi, áreiðanleiki og hágæða vinnubrögð séu ávallt höfð að leiðarljósi.

Við leitum að áhugasömum einstaklingi í Component shop (hlutaverkstæði) sem ber ábyrgð á viðhaldi á ýmiskonar íhlutum fyrir flugvélar Icelandair. Hjá Component Shop starfar öflugur hópur sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á því sviði.

Starfshlutfall er 100% og unnið er á dagvinnutíma.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Ábyrgðarsvið

  • Almenn þrif á íhlutum fyrir viðhald
  • Sinnir verkbeiðnum samkvæmt beiðni yfirmanns
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfni og menntun

  • 18 ára lágmarksaldur
  • Almenn ökuréttindi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að ná árangri í starfi
  • Stundvísi
  • Geta til þess að vinna undir álagi
  • Jákvætt hugafar
  • Hreint sakavottorð

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

Umsóknir óskast ásamt ferilskrá eigi síður en 28. September, 2026.

Nánari upplýsingar veita

Ásbjörn Halldór Hauksson, Supervisor shops & tools, asbjornhal@icelandair.is

From jobs.50skills.com · seen 4 hours ago